Fotbolti.net
20.07.26 - 22:40
Helgi Inguson

Gunnar Heiðar eftir þriðja sigurleikinn í röð: Ekkert að horfa á Aftureldingu

Auglýsing
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari HK

Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari HK

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
HK sigraði Vestra í 14. umferð Lengjudeildarinnar í kvöld. Leikar enduðu 6-2 í Kórnum. Heimamenn voru fjórum mörkum yfir í hálfleik í annan leikinn í röð. Fótbolti.net náði tali af Gunnari Heiðari, þjálfara HK, eftir leik.
Lestu um leikinn: HK 6 - 2 Vestri
„Það var virkilega gaman að sjá HK liðið í dag. Frábærir fyrstu 60 mínúturnar, fyrri háfleikurinn hefði ekki getað orðið betri þannig lagað séð. Við fengum góð færi og skorum góð mörk. Við erum að gera nákvæmlega það sem við höfum gert síðustu vikur í framþróun á leikstílnum okkar," sagði Gunnar um gang leiksins og uppgang liðsins.

Fyrri hálfleikur var keimlíkur fyrri hálfleik liðsins gegn ÍR í síðustu viku. Liðið skoraði fyrsta markið þegar hálfleikurinn var hálfnaður, fékk blóð á tennurnar og gerði út um leikinn í hálfleik.

„Við viljum spila svona, þetta er leikstíllinn okkar. Við þurfum ekkert að fara niður á afturfæturna þegar við skorum mörk. Við viljum bara meira og meira."

HK hefur nú unnið þrjá leiki í röð og er þremur stigum frá Aftureldingu á toppi deildarinnar sem á þó leik til góða. Horfir Gunnar upp til Aftureldingar á toppnum?

„Ég er nú ekki að horfa á Aftureldingu neitt. Ég er bara að hugsa um okkur og það sem við erum að gera og viljum gera. Við erum að gera það sem vilum gera inn á vellinum og æfingum og það er að virka. Við sjáum að það skilar okkur þremur stigum, og það er akkúrat það sem við viljum, að fá þrjú stig í hverjum leik," sagði Gunnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.