Fotbolti.net
08.11.26 - 10:20
Brynjar Ingi Erluson

Ekki gerst síðan Ferguson var nýtekinn við United

Tæp fjörutíu ár eru liðin frá því að United var síðast í fallsæti

Tæp fjörutíu ár eru liðin frá því að United var síðast í fallsæti

Canon

Mynd: EPA

Manchester United er í fallsæti fyrir leiki dagsins í ensku úrvalsdeildinni, en liðið hefur ekki verið í þeirri stöðu síðan Sir Alex Ferguson var við stjórnvölinn.
Hló þegar hann sá Man Utd í fallsæti - „Trúi þessu ekki“
TENGT EFNI

Hló þegar hann sá Man Utd í fallsæti - „Trúi þessu ekki“

Sigur Nottingham Forest á Manchester City sendi United niður í fallsæti fyrir leik liðsins gegn Aston Villa á Old Trafford í dag.

United fær þar tækifæri til að lyfta sér aftur upp úr fallsætinu, en félagið hefur ekki verið í þessari stöðu síðan Sir Alex Ferguson tók við stjórn þess árið 1986.

Ron Atkinson var þá látinn taka poka sinn eftir að hafa stýrt liðinu niður í 19. sæti deildarinnar. Ferguson tók við en það tók Skotann tíma að koma liðinu aftur á rétta braut. United féll niður í fallsæti í fyrstu leikjunum undir hans stjórn og sat í 21. sæti þann 15. nóvember 1986 áður en honum tókst að hífa liðið upp töfluna.

United endaði að lokum í ellefta sæti það tímabilið, en nú, 40 árum eftir að Ferguson tók við, er félagið aftur komið í fallsæti.

Ferguson verður einmitt í stúkunni á Old Trafford í dag þar sem þess verður minnst að 40 ár eru liðin síðan hann tók við stjórn félagsins og hóf þá vegferð sem gerði United aftur að einu besta liði heims.

United hefur ekki unnið deildarleik síðan gegn Ipswich í ágúst, en vonast til að fylgja eftir sigrinum á Roma í Meistaradeildinni á dögunum.

Miklar líkur eru taldar á því að Michael Carrick verði látinn taka poka sinn í landsleikjahléinu ef United tekst ekki að vinna Villa í dag.
Ekki gerst síðan Ferguson var nýtekinn við United
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.