Fotbolti.net
09.03.23 - 22:29
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ósáttir með að mark Betis fékk að standa: Heimskuleg regla

Leikmenn Betis fagna markinu

Leikmenn Betis fagna markinu

Canon

Mynd: EPA

Jöfnunarmark Real Betis gegn Manchester United er umdeilt en Owen Hargreaves og Paul Scholes ræddu það hjá BT Sport eftir leikinn.

Boltinn fór í hendina á Juanmi sem lagði boltann á Ayoze Perez sem skoraði glæsilegt mark. Þar sem boltinn fór fyrst í búkinn og þaðan í hendina var markið ekki dæmt af.

Scholes er ekki hrifinn af þeirri reglu.

„Þetta er ekki slys, sjáðu hvernig hann hreyfir hendina, ef þú skoðar þetta nánar þá held ég að þetta snerti hendina fyrst, þetta er heimskuleg regla," sagði Scholes.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.