Fotbolti.net
09.04.20 - 06:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Flick vill fá Havertz og Havertz vill fara til Bayern"

„Flick vill fá Havertz og Havertz vill fara til Bayern"
Canon

Mynd: Getty Images

FC Bayern Munchen er með augastað á Kai Havertz, sóknartengiliði Bayer Leverkusen. Havertz hefur verið orðaður við skipti til Englands en þýsku meistararnir vilja klófesta miðjumanninn stórefnilega.

„Flick vill fá Havertz og Havertz vill fara til Bayern, allt snýst samt um fjárhagslegu hliðina á endanum," segir Marck Behrenbeck, sérfæðingur hjá Sky í Þýskalndi. Hann telur að helmingslíkur séu á því að Havertz færi sig um set í sumar.

Hansi Flick fékk á dögunum langtímasamning hjá Bayern en hann tók við sem bráðabirgðastjóri þegar Niko Kovac var rekinn fyrr á leiktíðinni.

Havertz verður 21 árs í sumar og hefur þegar skorað þrjátíu mörk í Bundesliga í 110 leikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.