Fotbolti.net
09.06.21 - 23:01
Brynjar Ingi Erluson

U19 kvenna vann topplið Selfoss í æfingaleik

U19 ára landsliðið skoraði fimm gegn Selfyssingum

U19 ára landsliðið skoraði fimm gegn Selfyssingum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Kvennaboltinn
U19 ára landslið kvenna vann Selfoss 5-0 í æfingaleik á Selfossi í kvöld.
Landsliðið er sem stendur í æfingaferð á Selfoss og tók æfingaleik við toppliðið Pepsi Max-deildinni.

Ólöf Sigríður Kristinsdóttir skoraði tvö mörk fyrir U19 ára liðið en Hildigunnur Benediktsdóttir, María Catarina Gros Ólafsdóttir og Andrea Rut Bjarnadóttir komust einnig á blað.

Þórður Þórðarson er þjálfari U19 ára landsliðsins en hann hættir með liðið í lok júní.

Liðið undirbýr sig fyrir undankeppni Evrópumótsins sem fer fram í haust.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.