Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 12. febrúar 2020 14:37
Magnús Már Einarsson
Hakim Ziyech sagður á leið til Chelsea í sumar
Mynd: Getty Images
Telegraaf í Hollandi segir frá því í dag að Chelsea hafi náð samkomulagi við Ajax um að fá Hakim Ziyech í sínar raðir í sumar.

Ziyech er sagður kosta Chelsea 45 milljónir evra eða 37,8 milljónir punda.

Hinn 26 ára gamli Ziyech á sjálfur eftir að ná samkomulagi við Chelsea um kaup og kjör.

Ziyech er skapandi miðjumaður en hann hefur verið lykilmaður í sóknarleik Ajax undanfarin ár.

Ziyech lék með yngri landsliðum Hollands en hann á ættir að rekja til Marokkó og hefur frá árinu 2015 leikið með landsliði Marokkó.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner