12.09.24 - 07:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Enzo Fernandez missir ökuréttindin í hálft ár


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Enzo Fernandez, leikmaður Chelsea, hefur misst ökuréttindin í hálft ár vegna umferðalagabrota fyrr á þessu ári.
Þessi 23 ára gamli Argentínumaður mætti ekki fyrir rétti í gær.Hann hafði fyrr á þessu ári verið fundinn sekur um tvær ákærur um að hafa ekki borið kennsl á ökumann Porsche Cayenne.
Ökumaðurinn er sagður hafa ekið yfir á rauðu ljósi í bænum Llanelli í nóvember og verið tekinn fyrir hraðakstur í Swansea í desember síðastliðnum.
Það var ekki sannað að Fernandez hafi verið undir stýrir en hann er skráður eigandi bílsins en hann svaraði engum spurningum lögreglu.
