Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   fim 12. nóvember 2020 19:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Níutíu landsleikja hópurinn verður að fimm manna lista
Icelandair
Aron Einar Gunnarsson.
Aron Einar Gunnarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði, og Birkir Bjarnason eru báðir í byrjunarliði Íslands gegn Ungverjalandi í úrslitaleik um sæti á EM í Búdapest í kvöld.

Akureyringarnir eru báðir að leika sinn 90. landsleik.

Hópurinn sem hefur leikið 90 landsleiki fyrir karlalandslið Íslands telur núna fimm manns.

Rúnar Kristinsson hefur leikið 104 landsleiki og er leikjahæstur. Ragnar Sigurðsson er í öðru sæti með 96 landsleiki og svo er Birkir Már Sævarsson með 93 landsleiki.

Svo koma Aron og Birkir. Hermann Hreiðarsson lék 89 landsleiki og Eiður Smári Guðjohnsen 88 landsleiki.

Smelltu hérna til að fara í beina textalýsingu frá leiknum.
Athugasemdir
banner
banner