Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   sun 13. október 2019 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Þjálfari spænska landsliðsins: Magnað afrek hjá Ramos
Sergio Ramos
Sergio Ramos
Mynd: Getty Images
Robert Moreno, þjálfari spænska landsliðsins, hrósaði Sergio Ramos í hástert eftir 1-1 jafnteflið gegn Noregi í kvöld.

Ramos, sem er 33 ára gamall, spilaði 168. leik sinn fyrir Spán og er nú leikjahæstur í sögunni.

Hann hefur unnið HM einu sinni og EM tvisvar á tíma sínum þar auk þess sem hann á verulega skreyttan feril hjá Real Madrid.

Moreno, sem er þjálfari Spánar í fjarveru Luis Enrique, var ánægður með afrek Ramos.

„Hann vill enn keppa og vinna titla með landsliðinu. Ég vil þakka honum opinberlega og vonandi getur hann veitt okkur þessa gleði áfram," sagði Moreno.
Athugasemdir
banner
banner
banner