Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 13. október 2020 06:00
Victor Pálsson
Dest: Vá, ég spila fyrir Barcelona
Mynd: Getty
Það tók bakvörðinn Sergino Dest smá tíma að átta sig á því að hann væri genginn í raðir spænska stórliðsins Barcelona frá Ajax í Hollandi.

Bandaríkjamaðurinn spilaði nýlega sinn fyrsta leik fyrir félagið en hann kostaði 21 milljón evra í sumar.

Dest er nú loksins að átta sig á félagaskiptunum og finnur auðvitað fyrir gríðarlegu stolti.

„Fyrstu dagana þá áttaði ég mig ekki almennilega á þessu en þegar ég horfi til baka þá hugsa ég: 'Vá, ég spila fyrir Barcelona!' Þetta gerðist svo hratt í fyrstu," sagði Dest.

„Núna er ég að átta mig á þessu þegar ég sé myndirnar og myndböndin og tilfinningin er frábær. Þetta er tilfinningaþrungin stund og var það þegar ég spilaði."

„Ég finn ekki fyrir pressu á neikvæðan hátt. Ég finn fyrir jákvæðri pressu svo það er mjög gott fyrir mig."

Athugasemdir
banner
banner
banner