14.09.26 - 14:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Camara hugsar ekki lengur um Chelsea

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Lamine Camara var nálægt því að fara til Chelsea undir lok félagaskiptagluggans. Tilboð frá Chelsea var samþykkt af Mónakó en þrátt fyrir munnlegt samkomulag bakkaði Mónakó út.
Chelsea bauð 47 milljónir punda í senegalska miðjumanninn en Chelsea vildi fá inn mann á miðjuna þar sem Enzo Fernandez fór til Manchester City.

TENGT EFNI
Umboðsmaður Sarr og Camara mjög ósáttur
Ráðamenn hjá Chelsea voru allt annað en kátir við Mónakó og sökuðu menn þar um ófagleg heit.
„Það var möguleiki að ég gæti farið," segir Camara við franska fjölmiðla.
„Þetta fór ekki í gegn að lokum og það er hluti af fótbolta. Ég er búinn að fletta á næstu blaðsíðu og einbeiti mér að tímabilinu."
„Ég get hjálpað liðinu mikið. Hlutir gerast hratt í fótbolta. Kannski koma önnur tækifæri. En núna þá er einbeitingin á tímabilinu hjá Mónakó," segir Camara sem er 22 ára miðjumaður.