Fotbolti.net
14.09.26 - 15:00
Elvar Geir Magnússon
Ítalski boltinn

Albert og félagar á toppnum en stúkan er tóm - „Eins og Covid tíminn“

Fámennt á heimavelli Lazio.

Fámennt á heimavelli Lazio.

Canon

Mynd: EPA

Lazio hefur farið vel af stað á tímabilinu í ítölsku A-deildinni og er ósigrað með tíu stig á toppnum. Samt sem áður er afskaplega tómlegt á heimaleikjum liðsins.

Liðið var 2-0 yfir gegn AC Milan um helgina en tapaði þeirri forystu niður í 2-2 jafntefli. Þrátt fyrir að þetta var heimaleikur Lazio þá voru fleiri stuðningsmenn Milan á leiknum.

„Með meiri stuðningi hefðum við kannski getað haldið forystunni. Fótbolti er ekkert án áhorfenda. Það vill enginn að staðan sé svona, við viljum að það sé fullt af stuðningsmönnum á leikjunum. Við söknum stuðningsmanna, þetta er eins og Covid tíminn," sagði Gennaro Gattuso, stjóri Lazio.
Ítalía: Snögg tvenna frá Moreira bjargaði stigi fyrir Milan
TENGT EFNI

Ítalía: Snögg tvenna frá Moreira bjargaði stigi fyrir Milan

Vilja losna við forsetann
Björn Már Ólafsson, sérfræðingur um ítalska boltann, kom inn á vandræði Lazio utan vallar þegar Albert Guðmundsson gekk í raðir félagsins. Stuðningsmenn mæta ekki á leiki því þeir eru að mótmæla eigandanum.

„Það verður athyglisvert að fylgjast með Alberti á þessu tímabili, sér í lagi vegna þeirra vandræða sem ríkja utan vallar hjá Lazio. Stuðningsmenn félagsins vilja ólmir losna við forseta félagsins, Claudio Lotito, og aðeins um 2.500 ársmiðar hafa verið seldir, samanborið við 30.000 í fyrra. Það er því engin rífandi stemning sem bíður hans á Stadio Olimpico," sagði Björn Már.

Fyrir leikinn gegn Milan sýndu stuðningsmenn Lazio að hugur þeirra sé hjá liðinu. Þeir söfnuðust saman við æfingasvæðið og fylgdu liðsrútunni á leikinn áður en þeir fóru heim til sín eða á barinn og horfðu þar,

Óvinsældir Lotito meðal stuðningsmanna eru ekki nýjar af nálinni. Fyrr á árinu gaf stuðningsmannahópur frá sér opið bréf þar sem ákvarðanir hans voru gagnrýndar og honum kennt um að árangursleysi liðsins undanfarin ár.

Lotito hefur verið sakaður um að veita Lazio ekki athygli á meðan hann einbeiting hans fer annað. Hann er virkur í stjórnmálum og var kjörinn á ítalska þingið árið 2022.
Matteo Cancellieri leikmaður Lazio með boltann í leiknum gegn Milan.

Matteo Cancellieri leikmaður Lazio með boltann í leiknum gegn Milan.

Canon

Mynd: EPA

Albert og félagar á toppnum en stúkan er tóm - „Eins og Covid tíminn“
Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Lazio4+310
2Roma3+99
3Inter3+59
4Cagliari4+29
5Milan4+38
6Como3+47
7Frosinone4+37
8Juventus4+27
9Sassuolo4+17
10Napoli4+16
11Atalanta406
12Lecce4-26
13Udinese304
14Torino3-13
15Fiorentina4-63
16Parma3-31
17Bologna4-31
18Monza4-51
19Genoa4-61
20Venezia4-70
Claudio Lotito, eigandi Lazio.

Claudio Lotito, eigandi Lazio.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.