Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 13. október 2020 19:00
Aksentije Milisic
PSG getur keypt Kean á 18 milljónir punda næsta sumar
Mynd: Getty Images
PSG hefur þann möguleika að kaupa Moise Kean, leikmann Everton, á 18 milljónir punda næsta sumar.

Kean er kominn til Parc des Princes á láni frá Everton en honum gekk illa að vinna sig í byrjunarlið Everton undir stjórn Carlo Ancelotti.

Tími hans á Goodison Park gæti verið liðinn en franskir fjölmiðlar greina frá því að PSG setti klásúlu í lánssamning Kean. Félagið getur keypt leikmanninn á 18 milljónir punda þegar lánssamningur klárast.

Everton keypti Kean frá Juventus á rúmar 25 milljónir punda síðasta sumar en hann skoraði einungis tvö mörk í 33 leikjum fyrir Everton í öllum keppnum á síðustu leiktíð.

Hann kom oftast inn á sem varamaður hjá Everton. Fyrst undir stjórn Marco Silva, svo undir Duncan Ferguson og að lokum Carlo Ancelotti. Kean kom við sögu í fjórum leikjum hjá Everton á þessari leiktíð áður en hann gekk til liðs við PSG.
Athugasemdir
banner
banner
banner