Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fim 14. janúar 2021 17:45
Magnús Már Einarsson
Lucas Piazon farinn eftir tíu ár hjá Chelsea
Lucas Piazon í leik með Chelsea.
Lucas Piazon í leik með Chelsea.
Mynd: Getty Images
Brasilíski kantmaðurinn Lucas Piazon hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Braga í Portúgal.

Tæplega tíu ár eru síðan Chelsea keypti Lucas í sínar raðir frá Sao Paulo.

Á ferli sínum hjá Chelsea spilaði Piazon einungis einn leik í ensku úrvalsdeildinni, í 8-0 sigri á Aston Villa árið 2012.

Síðan þá hefur Lucas flakkað um Evrópu á láni en hann hefur farið á lán til Malaga, Vitesse, Frankfurt, Reading, Fulham, Chievo og Rio Ave.

Lucas er nú búinn að kveðja Chelsea fyrir fullt og allt og semja við Braga.
Athugasemdir
banner
banner
banner