Fotbolti.net
14.09.26 - 14:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Stubbur sneri til baka er Ívar meiddist

Stubbur mættur aftur

Stubbur mættur aftur

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Steinþór Már Auðunsson (1990) var í gær í annað sinn í leikmannahópi KA eftir að hafa glímt við meiðsli. Stubbur, eins og Steinþór er oftast kallaður, handarbrotnaði í leik gegn ÍA í júlí og er kominn af stað aftur.

Hann kom inn á í gær þega Ívar Arnbro Þórhallsson (2006), sem hafði staðið vaktina í marki KA í fjarveru Stubbs, virtist togna. Stubbur varði tvö skot á þeim 27 mínútum sem hann spilaði.
Lestu um leikinn: FH 3 - 0 KA
„Að sjálfsögðu er gott að fá þá aftur, það kemur reynsla með þeim og tilfinningar. Þetta eru menn með KA hjarta og á svona tímapunkti viltu hafa alla heila," sagði Eiður Smári Guðjohnsen, annar af þjálfurum KA, þegar hann var spurður út í þá Hallgrím Mar og Hrannar Björn Steingrímssyni og Stubb sem mættu aftur á völlinn í gær eftir mislanga fjarveru eftir meiðsli.

„Ég held að Ívar hafi fundið eitthvað í náranum, eitthvað hafi gefið sig. Ég á bara eftir að tala við hann og hann fer væntanlega í einhverja skoðun. Við verðum bara að taka á því eins og með menn. Því miður eru meiðsli hluti af fótboltanum. Eg hef fulla trú á okkur og við getum farið heim í fýlu í kvöld sem einstaklingar og komið saman sem lið á morgun. Við vitum alveg hvað er framundan," sagði Eiður en framundan eru fjórir leikir í fallbaráttunni.

Næsti leikur KA er heimaleikur gegn Þór á laugardagskvöld og eitt stig skilur liðin að.
Ívar meiddist í gær.

Ívar meiddist í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Smári eftir þungt tap: Mér fannst við betri aðilinn

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Stjarnan23-631
2Valur23-330
3FH23-924
4Þór23-3121
5KA23-1620
6ÍBV23-1518
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.