Fotbolti.net
14.02.21 - 16:10
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Ítalía: Auðvelt fyrir Roma - Muriel með sigurmark undir lokin

Ítalía: Auðvelt fyrir Roma - Muriel með sigurmark undir lokin
Canon

Mynd: Getty Images

Þremur fyrstu leikjum dagsins er lokið í ítalska boltanum þar sem Roma, Atalanta og Sampdoria unnu sína leiki.
Roma afgreiddi Udinese þægilega þar sem Jordan Veretout skoraði tvennu í fyrri hálfleik. Pedro gerði út um viðureignina í uppbótartíma og urðu lokatölur 3-0.

Luis Muriel kom þá inn af bekknum og gerði eina mark leiksins er Atalanta hafði betur á útivelli gegn Cagliari.

Roma er í þriðja sæti eftir sigurinn með 43 stig úr 22 umferðum. Atalanta er í sjöunda sæti með 40 stig en Evrópubaráttan er gríðarlega spennandi um þessar mundir.

Roma 3 - 0 Udinese
1-0 Jordan Veretout ('5)
2-0 Jordan Veretout ('25)
3-0 Pedro ('93)

Cagliari 0 - 1 Atalanta
0-1 Luis Muriel ('90)

Keita Balde og Fabio Quagliarella skoruðu þá mörkin er Sampdoria lagði Fiorentina að velli.

Staðan var jöfn eftir jafnan fyrri hálfleik en gestirnir frá Flórens tóku öll völd á vellinum eftir leikhlé.

Gamla kempan Quagliarella kom þó af bekknum og náði að stela sigrinum fyrir heimamenn þrátt fyrir yfirburði fjólubláu gestanna.

Samp er um miðja deild með 30 stig eftir sigurinn. Fiorentina er með 22 stig, sjö stigum frá fallsæti.

Sampdoria 2 - 1 Fiorentina
1-0 Keita Balde ('31)
1-1 Dusan Vlahovic ('37)
2-1 Fabio Quagliarella ('71)
Ítalía: Auðvelt fyrir Roma - Muriel með sigurmark undir lokin
Canon

Mynd: Getty Images

Ítalía: Auðvelt fyrir Roma - Muriel með sigurmark undir lokin
Canon

Mynd: Getty Images

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Roma5+1113
2Inter5+713
3Lazio5+513
4Cagliari5+312
5Milan5+611
6Frosinone5+510
7Juventus5+410
8Como5+310
9Napoli5+17
10Sassuolo507
11Atalanta5-26
12Lecce5-56
13Udinese5-34
14Torino5-34
15Parma5-34
16Monza5-44
17Fiorentina5-64
18Bologna5-32
19Genoa5-71
20Venezia5-90
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.