Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 14. desember 2020 13:02
Elvar Geir Magnússon
Guðlaugur Victor minnist móður sinnar sem lést á dögunum
Guðlaugur Victor Pálsson.
Guðlaugur Victor Pálsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðlaugur Victor Pálsson, leikmaður íslenska landsliðsins og Darmstadt, birti í dag hjartnæma færslu á Instagram þar sem hann minnist móður sinnar sem lést á dögunum 47 ára að aldri.

Guðlaugur Victor var í síðustu viku orðaður við heimkomu í Pepsi Max-deildina en KR og Valur eru sögð vera að berjast um hann.

Færslan á Instagram
Kæra mamma mín sem ég elskaði svo mikið er látin 47 ára að aldri eftir langa baráttu við áfengis og vímuefnafíkn.

Til elskulegar móður minnar.
Ég áttaði mig aldrei á því hvað orðin "Ég sakna þín" þýða þar til núna. Ég var ekki tilbúinn að segja bless, vonin lifði svo sterkt hjá mér um að þú myndir jafna þig og koma til baka. Nú er sú von farin og það er sárt. Ég veit hversu mikið þú reyndir og barðist. Þú vildir ekkert meira en að koma til baka og vera til staðar fyrir börn þín og barnabörn. Axel var heppinn að hafa þig í lífi sínu. Þú elskaðir hann mjög mikið og hann elskaðir þig. Ég lofa því að hann mun alltaf minnast þín.
Þú gerðir þitt allra besta, ég veit þú gerðir það.
Lífið var ekki alltaf auðvelt eða sanngjarnt fyrir þig og ég vil að þú vitir að ég er svo stoltur af þér.
Þú varst góð móðir og besti vinur minn. Síðustu árin voru erfið fyrir okkur en þegar ég ólst upp, þrátt fyrir erfiða tíma, þá hefði ég ekki viljað eiga neina aðra mömmu. Góðu minningarnar munu lifa með mér að eilífu. Ég er sá sem ég er út af þér og ég mun halda áfram að vinna í að vera besta útgáfan af sjálfu mér eins og þú vildir. Ég mun halda áfram að láta þig vera stolta af mér og ég mun halda áfram að berjast fyrir allt sem þú trúðir og stóðst fyrir.
Hlýja og stóra hjartað þitt verður sárt saknað. Þú varst svo góð og vildir hjálpa öllum sem þurftu á að halda. Þú varst svo elskuleg og góð við alla sem þú komst nálægt.
Ég biðst afsökunar á að hafa ekki alltaf skilið þar sem þú varst að ganga í gegnum en núna geri ég það. Ég fyrirgef þér fyrir allt og vona að þú fyrirgefir mér.
Ég hef trú á því að þú lifir í friði og á betri stað núna.
Þetta er ekki kveðjustund fyrir okkur. Hvar sem þú ert þá verður þú alltaf í hjarta mínu. Ég hef alltaf og mun alltaf elska þig.
Þinn sonur,
Gulli Victor.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner