Fotbolti.net
15.01.23 - 21:52
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Ítalía: Dybala skoraði bæði mörkin í sigri á Fiorentina

Paulo Dybala skoraði tvö fyrir Roma

Paulo Dybala skoraði tvö fyrir Roma

Canon

Mynd: EPA

Roma 2 - 0 Fiorentina
1-0 Paulo Dybala ('40 )
2-0 Paulo Dybala ('82 )
Argentínski sóknarmaðurinn Paulo Dybala skoraði bæði mörk Roma í 2-0 sigrinum á Fiorentina í lokaleik Seríu A í kvöld.

Gestirnir spiluðu manni færri frá 24. mínútu er brasilíski bakvörðurinn Dodo fékk sitt annað gula spjald í leiknum.

Það var smá heppnisstimpill yfir fyrra mark Dybala. Tammy Abraham fann Dybala sem lét vaða við vítateigslínuna en boltinn fór af varnarmanni og í autt netið.

Roma náði að stjórna síðari hálfleiknum vel en liðið var í leit að öðru marki. Það kom á endanum og aftur var það samstarf Abraham og Dybala sem skilaði marki. Englendingurinn lagði boltann á Dybala sem tók skotið í fyrstu snertingu og inn fór boltinn.

Góður sigur Roma sem er í 7. sæti með 34 stig en Fiorentina er í 10. sæti með 23 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.