Fotbolti.net
15.08.22 - 21:32
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Spánn: Morata byrjar tímabilið ansi vel

Alvaro Morata.

Alvaro Morata.

Canon

Mynd: EPA

Það voru þrír leikir í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld er fyrsta umferð deildarinnar kláraðist.
Alvaro Morata, sem hefur verið mikið orðaður við Manchester United, var í stuði í kvöld og skoraði hann tvö mörk fyrir Atletico Madrid í sigri gegn Getafe.

Atletico fór á útivöll og vann sterkan sigur. Antoine Griezmann var einnig á skotskónum.

Morata verður nú væntanlega ekki seldur eftir svona frammistöðu. Verðmiðinn hefur að minnsta kosti eitthvað hækkað.

Betis vann einnig flottan sigur, 3-0 gegn Elche á heimavelli. Þá gerðu Athletic Bilbao og Mallorca markalaust jafntefli.

Athletic 0 - 0 Mallorca

Getafe 0 - 3 Atletico Madrid
0-1 Alvaro Morata ('15 )
0-2 Alvaro Morata ('59 )
0-3 Antoine Griezmann ('75 )

Betis 3 - 0 Elche
1-0 Borja Iglesias ('28 )
2-0 Juanmi ('39 )
3-0 Juanmi ('60 )
Rautt spjald: John Donald, Elche ('16)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.