Byrjunarlið Portúgals og Kongó: Tekst Ronaldo að svara Messi?

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo er fremstur hjá Portúgölum sem mæta lýðveldi Kongó í 1. umferð í riðlakeppni heimsmeistaramótsins klukkan 17:00 í dag, en leikurinn er spilaður á NRG-leikvanginum í Houston, Texas í Bandaríkjunum.
Það ætti svo sem ekki að koma neinum á óvart að Ronaldo sé í byrjunarliðinu. Hann er fyrirliðinn og mun leiða liðið áfram á þessu móti og er þá auðvitað einn besti leikmaður allra tíma.
Portúgal er með Evrópumeistarana Nuno Mendes, Joao Neves og Vitinha inn á ásamt Bruno Fernandes.
Margar stórstjörnur eru á bekknum, en þar má nefna Ruben Dias, Joao Felix, Rafael Leao og Matheus Nunes.
Portúgal: Costa; Mendes, Araujo, Veiga, Cancelo; Neves, Fernandes, Vitinha, Silva; Neto, Ronaldo.
Lýðveldið Kongó: Mpasi; Wan-Bissaka, Kapuadi, Tuanzebe, Mbemba, Masuaku; Mukau, Moutoussamy, Kayembe; Bakambu, Wissa.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!