Mjólkurbikar kvenna: Taylor fór á kostum og Fram í undanúrslit

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

FHL 1 - 7 Fram
0-1 Taylor Marie Hamlett ('7 )
0-2 Alda Ólafsdóttir ('39 )
0-3 Taylor Marie Hamlett ('41 )
0-4 Sara Svanhildur Jóhannsdóttir ('44 )
0-5 Una Rós Unnarsdóttir ('45 )
0-6 Taylor Marie Hamlett ('57 )
1-6 Alexis Simone Wright ('74 )
1-7 Brookelynn Paige Entz ('77 )
Lestu um leikinn

Fram er komið í undanúrslit Mjólkurbikars kvenna eftir öruggan 7-1 sigur á FHL í Fjarðabyggðarhöllinni í dag. Taylor Marie Hamlett gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu fyrir gestina.
Framarar gerðu raunar út um leikinn strax í fyrri hálfleik. Taylor skoraði á 7. mínútu eftir góðan sprett áður en Alda Ólafsdóttir bætti öðru marki við á 39. mínútu.
Embla Fönn Jónsdóttir varði þá skot frá Taylor en Alda var mætt til að skila frákastinu í netið. Í kjölfarið settu Framarar í fimmta gír og skoruðu þrjú mörk til viðbótar áður en flautað var til loka fyrri hálfleiks.
Taylor gerði sitt annað mark og þær Sara Svanhildur Jóhannsdóttir og Una Rós Unnarsdóttir skoruðu sitt markið hvor.
Þegar um hálftími var eftir fullkomnaði Taylor þrennuna og undirstrikaði um leið mikinn gæðamun á liðunum.
Alexis Simone Wright klóraði í bakkann fyrir FHL á 74. mínútu áður en Brookelynn Paige Entz rak síðasta naglann í kistu Austfirðinga þremur mínútum síðar.
Fram er þar með fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum, og það með afar sannfærandi hætti.