Nýliðarnir gætu byrjað tímabilið með mínusstig

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Nýliðar Hull City gætu byrjað tímabilið í ensku úrvalsdeildinni með mínusstig ef félaginu tekst ekki að selja leikmenn fyrir mánaðamót. Þetta kemur fram á BBC.
Hull vann Middlesbrough í umspili um sæti í ensku úrvalsdeildinni og tryggði sér þar með um 200 milljónir punda.
Sigurinn hafði þó óvæntar afleiðingar í för með sér, því félagið neyðist til að selja leikmenn fyrir mánaðamót til að koma í veg fyrir mögulegan stigafrádrátt á næsta tímabili í úrvalsdeildinni.
Hull fór um sex milljónir punda fram úr leyfilegum mörkum samkvæmt PSR-reglunum, reglum um fjárhagslega sjálfbærni, og gæti félagið því byrjað næsta tímabil með sex mínusstig.
Ástæðan fyrir umframeyðslunni eru bónusar í samningum leikmanna sem urðu virkir þegar félagið fór upp um deild.
Hefði Hull tapað fyrir Middlesbrough hefði félagið ekki verið í hættu á að fara fram úr leyfilegu 39 milljóna punda tapi á síðustu þremur tímabilum og hefði því ekki átt yfir höfði sér stigafrádrátt.
Acun Ilicali, forseti Hull, hefur viðurkennt að félagið þurfi að selja leikmenn fyrir 1. júlí. Kyle Joseph hefur verið orðaður við félög í ensku B-deildinni og þá er félagið opið fyrir tilboðum í David Akintola, Abu Kamara og Kasey Palmer.