Fotbolti.net
17.06.26 - 14:43
Brynjar Ingi Erluson

Veðbankar efast um að Ronaldo leiki eftir þrennu Messi

Veðbankar efast um að Ronaldo leiki eftir þrennu Messi
Canon

Mynd: EPA

Cristiano Ronaldo verður annar leikmaðurinn til að spila á sjötta heimsmeistaramóti sínu þegar Portúgal mætir Kongó klukkan 17:00 í dag, en veðbankar telja ólíklegt að hann leiki eftir þrennu Lionel Messi.
Messi skoraði þrennu í opnunarleik heimsmeistara Argentínu gegn Alsír í nótt.

Þetta var fyrsta þrenna hans á HM og með mörkunum jafnaði hann markamet Miroslav Klose. Messi er nú kominn með sextán mörk á heimsmeistaramótum.

Öll augu eru á honum og Cristiano Ronaldo, en þeir eru báðir að öllum líkindum að spila á HM í síðasta sinn.

EpicBet hefur litla trú á því að Ronaldo leiki eftir frammistöðu Messi í nótt, en stuðullinn á að hann skori þrennu gegn Kongó er 14.

Það má hafa í huga að Ronaldo skoraði aðeiuns eitt mark á síðasta heimsmeistaramóti. Hann er samtals með átta HM-mörk í 22 leikjum og hefur einu sinni skorað þrennu á mótinu, gegn Spáni á HM 2018.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.