Julio Cesar Fernandes hjá KF er ICE leikmaður 21. umferðar í 2. deild karla að mati Ástríðunnar. Hann skoraði fjögur mörk í 8-3 stórsigri á Reyni S.
„Ætli hann hafi ekki búið til svona átta færi," sagði Sverrir Mar
..Akkúrat, hann var skapandi fram á við og hitti á góðan leik. Hann er löðrandi í gæðum og hefur verið flottur í sumar hjá KF," sagði Óskar Smári.
Fernandes er í baráttu um gullskóinn en hann er með 15 mörk, einu marki minna en Áki Sölvason hjá Völsungi og Oumar Diouck hjá Njarðvík.
Hægt er að hlusta á Ástríðuna hér að neðan og í öllum hlaðvarpsveitum.
Lokaumferðin fer fram í dag.
2. deild karla
13:00 Höttur/Huginn-KF (Vilhjálmsvöllur)
14:00 Reynir S.-KFA (BLUE-völlurinn)
14:00 ÍR-Njarðvík (ÍR-völlur)
14:00 Víkingur Ó.-Haukar (Ólafsvíkurvöllur)
14:00 Þróttur R.-Ægir (AVIS völlurinn)
16:00 Magni-Völsungur (Grenivíkurvöllur)