Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 19. mars 2021 11:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Meistaradeildin: Liverpool mætir Real Madrid
Úr úrslitaleik Real Madrid og Liverpool. Real Madrid vann þann leik en Liverpool vann árið eftir í úrslitaleik gegn Tottenham.
Úr úrslitaleik Real Madrid og Liverpool. Real Madrid vann þann leik en Liverpool vann árið eftir í úrslitaleik gegn Tottenham.
Mynd: Getty Images
Nú rétt í þessu var dregið í átta-liða úrslit í Meistaradeildinni. Englandsmeistarar Liverpool mæta spænsku meisturunum í Real Madrid.

Ríkjandi Evrópumeistarar Bayern München mæta Kylian Mbappe og félögum í Paris Saint-Germain.

Porto, sem sló út Juventus í 16-liða úrslitunum, mætir Chelsea og Manchester City, topplið ensku úrvalsdeildarinnar, etur kappi við Borussia Dortmund.

Það var einnig dregið í undanúrslit en dráttinn í heild sinni má sjá hér að neðan. Það verður leikið í átta-liða úrslitunum og 6. og 7. apríl, og 13. og 14. apríl.

8-liða úrslitin
Manchester City - Borussia Dortmund
Porto - Chelsea
Bayern München - Paris Saint-Germain
Real Madrid - Liverpool

Undanúrslitin:
Bayern/PSG - Man City/Dortmund
Real Madrid/Liverpool - Porto/Chelsea
Athugasemdir
banner
banner
banner