19.06.23 - 18:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
- LaugardalsvöllurMyndband: Ronaldo grínaðist við fréttamann Fótbolta.net

Ronaldo hress á fundinum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ronaldo hress á fundinum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Cristiano Ronaldo, einn besti fótboltamaður sögunnar, var hinn hressasti þegar hann mætti á fréttamannafund á Laugardalsvelli í kvöld. Á morgun spilar hann sinn 200. landsleik þegar Portúgal mætir Íslandi í undankeppni EM 2024.
Ronaldo gaf sér tíma í að svara spurningum portúgalskra fréttamanna og svaraði svo nokkrum spurningum frá íslenskum fjölmiðlamönnum.
Sæbjörn Þór Steinke, fréttamaður Fótbolta.net, spurði Ronaldo: 'Ef þú fengir að velja einn leikmann í heiminum til að koma til Al-Nassr, hvern myndirðu velja?'
Ronaldo svaraði spurningunni á léttu nótunum - vildi ekki gefa upp nein nöfn - og benti á Sæbjörn. „Ég myndi velja þig," sagði Ronaldo og hló hátt. Hann blikkaði svo Sæbjörn og yfirgaf svo fundinn í besta skapi.
Fjölmiðlafulltrúi Portúgal ætlaði að stoppa fundinn en Ronaldo sá að Sæbjörn var með upprétta hendi og fór ekki án þess að svara henni. Skemmtilegt en Al-Nassr þarf að borga ansi vel til að fá Steinke lausan frá Fótbolta.net.
Hægt er að sjá myndband af þessari skemmtilegu uppákomu hér fyrir neðan.

Journalist:
— The CR7 Timeline. (@TimelineCR7) June 19, 2023
Which of the players in the world would you choose to play for Al Nassr?
Cristiano:
“I choose you.” ????
pic.twitter.com/x7IxSJsqRY

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð