KR spilar í sérstökum afmælisbúning gegn Víkingi R. í Pepsi Max-deildinni í kvöld en liðin eigast við klukkan 18:00 í Vesturbæ.
TIlefnið er að KR fagnar 120 ára afmæli sínu á þessu ári.
Liðið mun spila í sérstökum afmælisbúning en einnig verða 120 treyjur slíkar treyjur til sölu í félagsheimili KR í tilefni dagsins. Fyrstir koma fyrstir fá.
Leynd hvílir ennþá yfir búningnum en hann mun sjást í fyrsta skipti í kvöld.
Þá verða gamlar hetjur – Íslandsmeistaraliðið goðsagnakennda frá 1999 sem fagnar um þessar mundir 20 ára afmæli sætasta sumars í sögu KR – heiðursgestir á leiknum.
Athugasemdir