Tveir af bestu fótboltamönnum sögunnar hittust fyrir leik Paris Saint-Germain og RB Leipzig í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í kvöld.
Brasilíska goðsögnin Ronaldinho er heiðursgestur í París í kvöld og var hann mættur niður á gras fyrir leikinn.
Þar hitti hann fyrrum liðsfélaga sinn, Lionel Messi, sem núna leikur með PSG.
Þeir spiluðu saman um stutt skeið hjá Barcelona. Messi tók svo við keflinu af Ronaldinho sem stjarna liðsins.
Ronaldinho spilaði með PSG, Barcelona og AC Milan á ferli sínum í Evrópu. Hann var magnaður fótboltamaður sem var með einstaka tækni.
Hér að neðan má sjá myndband af því þegar Messi sá Ronaldinho. Hann hljóp beinustu leið til hans og faðmaði þann brasilíska.
Messi and Ronaldinho linking up again.. this is too beautiful 😍 pic.twitter.com/SKffrBJpor
— J. (@MessiIizer) October 19, 2021
Athugasemdir