Fotbolti.net
20.07.22 - 20:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Harrison ekki að fara neitt - „Hann vakti óvart athygli á þessu"

Harrison ekki að fara neitt - „Hann vakti óvart athygli á þessu"
Canon

Mynd: Getty Images

Jack Harrison leikmaður Leeds United hefur verið orðaður við Newcastle að undanförnu. Hann gaf það í skyn að það væru einhverjar viðræður í gangi.

Hann var ekki undirbúinn þegar hann var spurður hver framtíð hans sé. Hann svaraði; „Við sjáum til hvað gerist."

Jesse Marsch stjóri Leeds segir að Harrison hafi óvart komið sögum af stað.

„Jack [Harrison] vakti óvart athygli á stöðunni því hann ætlar að vera áfram hjá okkur," sagði Marsch.

„Það er alltaf áhugi á leikmönnunum okkar því við erum með frábæra leikmenn. Við erum í bestu deild í heimi og okkur finnst þeir leikmenn sem við höfum geta hjálpað okkur að ná árangri og Jack er klárlega einn af þeim."

Leeds hefur misst einn af sínum bestu leikmönnum en Raphinha gekk til liðs við Barcelona í vikunni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.