Fotbolti.net
20.08.26 - 10:30
Ívan Guðjón Baldursson

Leeds sendir miðvörð til Þýskalands (Staðfest)

Leeds sendir miðvörð til Þýskalands (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Leeds United var að krækja í miðvörðinn Nico Elvedi úr röðum Borussia Mönchengladbach og gat því leyft Sebastiaan Bornauw að yfirgefa félagið.
Elvedi til Leeds (Staðfest) - Endurnýjar kynnin við Farke
TENGT EFNI

Elvedi til Leeds (Staðfest) - Endurnýjar kynnin við Farke

Bornauw fer til Hamburger SV á lánssamningi eftir að hafa komið við sögu í sautján leikjum á sínu fyrsta tímabili í Leeds.

Bornauw er 27 ára Belgi með fjóra leiki að baki fyrir A-landsliðið eftir að hafa verið lykilmaður upp unglingalandsliðin.

Leeds borgaði um 5 milljónir punda til að kaupa Bornauw í fyrrasumar og hefur HSV kaupmöguleika með lánssamningnum sem hljóðar upp á 3,5 milljónir punda.

Bornauw er samningsbundinn Leeds til 2029.
Leeds sendir miðvörð til Þýskalands (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.