Fotbolti.net
12.08.26 - 17:25
Kári Snorrason

Pálmi Rafn æfir með Víkingum - „Einum meiðslum frá því að vera í markvarðarkrísu“

Auglýsing
Pálmi Rafn æfir með Víkingum.

Pálmi Rafn æfir með Víkingum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur mætir svissnesku meisturunum Thun í seinni leik liðanna í forkeppni Evrópudeildarinnar á Víkingsvelli annað kvöld.

Thun leiðir einvígið með þremur mörkum eftir að hafa unnið Víking 3-0 úti í Sviss.

Fótbolti.net ræddi við Sölva Geir Ottesen, þjálfara Víkings, í Víkinni eftir æfingu liðsins fyrr í dag.
Staðan lítur ekki vel út
„Ég er ekki að spá í möguleikunum, ég er frekar að spá í að ná góðri frammistöðu á móti þeim sem mun skila okkur í góðum úrslitum,“ segir Sölvi aðspurður um möguleika Víkings.

„Við þurfum að halda í vonina í þessu einvígi. Staðan lítur ekki vel út, við erum 3-0 undir og þetta er mjög erfitt verkefni fyrir framan okkur. Með trú, vilja og samstöðu er margt hægt í fótbolta.“

„Við þurfum að vera á okkar allra besta degi, með stuðning úr stúkunni og öll smáatriði á hreinu. Það þarf allt að ganga upp til að við náum að koma okkur áfram í næstu umferð í forkeppni Evrópudeildarinnar.“


Danni Hafsteins spurningamerki
Meiðsli hafa herjað á herbúðir Víkings. Elías Már, Tarik Ibrahimagic og Óskar Borgþórs eru frá til lengri tíma. Sölvi segir stöðuna á hópnum þó nokkuð góða.

„Það er spurningamerki með Daníel Hafsteins, hann var ekki með gegn ÍBV.“

Pálmi Rafn á æfingu
Ögmundur Kristinsson meiddist í upphitun fyrir leik Víkings gegn Thun úti í Sviss. Meiðsli hafa herjað á markverði Víkings og var Pálmi Rafn Arinbjörnsson kallaður til og var á æfingu liðsins í dag.

Pálmi lagði hanskana á hilluna eftir síðasta tímabil þrátt fyrir ungan aldur en hann hafði misst áhugann á fótbolta.

Pálmi Rafn hættur - „Tilfinningin að elska fótbolta kom aldrei"
TENGT EFNI

Pálmi Rafn hættur - „Tilfinningin að elska fótbolta kom aldrei"


„Hann fékk að koma á æfingu. Við vildum sjá hvernig standi hann er í. Ömmi meiddist og við erum einum meiðslum frá því að vera í markvarðarkrísu. Við vildum sjá hvar hann stendur og hverjir möguleikarnir eru ef við verðum fyrir fleiri áföllum með markmenn.“

Var lítið mál að kalla Pálma til? „Já, það tók eitt símtal,“ sagði Sölvi léttur.

Hvernig hefur hann verið á æfingum?
„Hann er búinn að líta ágætlega út. Hann er búinn að halda sér við og er í flottu líkamlegu ástandi. Við þurfum að skoða betur hvernig standið á honum sem markvörður er,“ sagði Sölvi að lokum.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Markvarðavandræðin endalausu hjá Víkingum
TENGT EFNI

Markvarðavandræðin endalausu hjá Víkingum

„Með trú, vilja og samstöðu er margt hægt í fótbolta.“

„Með trú, vilja og samstöðu er margt hægt í fótbolta.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur tapaði fyrri leiknum 3-0.

Víkingur tapaði fyrri leiknum 3-0.

Canon

Mynd: EPA

Ögmundur meiddist í upphitun úti í Sviss.

Ögmundur meiddist í upphitun úti í Sviss.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Hann er búinn að halda sér við og er í flottu líkamlegu ástandi.“

„Hann er búinn að halda sér við og er í flottu líkamlegu ástandi.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Snær hefur jafnframt verið að glíma við meiðsli á tímabilinu.

Aron Snær hefur jafnframt verið að glíma við meiðsli á tímabilinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.