Fotbolti.net
20.11.12 - 08:00
Elvar Geir Magnússon

Domino\'s-lið vikunnar í enska

Michael Turner.

Michael Turner.

Canon

Mynd: Getty Images

Liðin umferð í ensku úrvalsdeildinni var áhugaverð fyrir margar sakir. Manchester City komst á toppinn í fyrsta sinn á tímabilinu og óvænt úrslit litu dagsins ljós. Garth Crooks, sérfræðingur BBC, hefur sett saman úrvalslið umferðarinnar.


Markvörður - John Ruddy, Norwich
Ruddy heldur áfram að fara á kostum. Hann varði eins og berserkur í mögnuðum sigri gegn Manchester United og hefur haldið hreinu í fimm leikjum á tímabilinu.

Hægri bakvörður - Nathaniel Clyne, Southampton
Sýndi það af hverju hann var orðaður við Manchester United þegar hann var í herbúðum Crystal Palace.

Miðvörður - Martin Skrtel, Liverpool
Þegar hann er góður er hann frábær. Það var hann gegn Wigan. Stríðsmaður.

Miðvörður - Michael Turner, Norwich
Miðvarðapar Norwich heldur áfram að fara á kostum. Turner var með sóknarmenn Manchester United í vasanum.

Vinstri bakvörður - Javier Garrido, Norwich
Fyrirgjöf hans lagði upp sigurmark Norwich. Fyrsti varnarmaðurinn sem leggur upp mark gegn United í deildarleik á tímabilinu.

Miðjumaður - Pablo Hernandez, Swansea
Skapaði sex marktækifæri gegn Newcastle. Stýrði sýningunni frá upphafi til enda.

Miðjumaður - Santi Cazorla, Arsenal
Sýndi gæði sín í sigrinum gegn Tottenham. Besti maður vallarins.

Miðjumaður - Jason Puncheon, Southampton
Skoraði eitt og átti tvær stoðsendingar í mögnuðum sigri á QPR.

Sóknarmaður - Luis Suarez, Liverpool
Er að vinna sér inn áskrift í þessu úrvalsliði. Markahæstur í deildinni, hefur skapað flest færi úr opnu spili og átt flestar snertingar í vítateig andstæðingana.

Sóknarmaður - Steven Fletcher, Sunderland
Ímyndið ykkur Tottenham ef liðið væri með Fletcher í stað Emmanuel Adebayor.

Sóknarmaður - Shane Long, West Brom
Finnur sig alltaf vel í leikjum gegn Chelsea og átti stórleik þegar bláliðar voru lagðir um helgina.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.