Fotbolti.net
20.11.20 - 05:55
Victor Pálsson
Subway

England um helgina - Mikil skemmtun framundan

Jose Mourinho mætir Pep Guardiola.

Jose Mourinho mætir Pep Guardiola.

Canon

Mynd: Getty Images

Félagslið Evrópu hefja leik á ný um helgina en undanfarna daga og viku hafa leikmenn verið í landsliðsverkefnum.
Leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar fá ekki mikinn tíma til að ná sér en fyrsti leikur helgarinnar hefst klukkan 12:30 á laugardag.

Chelsea heimsækir þá Newcastle á St. James' Park en síðar um daginn fer fram stórleikur Tottenham og Manchester City.

Grannar City í Manchester United ljúka svo laugardeginum klukkan 20:00 er West Bromwich Albion kemur í heimsókn.

Á sunnudaginn eru svo hörkuleikir á dagskrá og ber helst að nefna viðureign Liverpool og Leicester um kvöldið.

Arsenal fær einnig erfitt verkefni gegn Leeds og mætir Gylfi Þór Sigurðsson liði Fulham með Everton.

Hér má sjá dagskrá helgarinnar.

Laugardagur:
12:30 Newcastle - Chelsea
15:00 Aston Villa - Brighton
17:30 Tottenham - Manchester City
20:00 Manchester United - West Brom

Sunnudagur:
12:00 Fulham - Everton
14:00 Sheffield United - West Ham
16:30 Leeds - Arsenal
19:15 Liverpool - Leicester City

Mánudagur:
17:30 Burnley - Crystal Palace
20:00 Wolves - Southampton

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.