Fotbolti.net
21.02.21 - 11:07
Aksentije Milisic

Byrjunarlið West Ham og Tottenham: Antonio og Kane leiða framlínurnar

Byrjunarlið West Ham og Tottenham: Antonio og Kane leiða framlínurnar
Canon

Mynd: Getty Images

Fyrsti leikur dagsins í enska boltanum hefst klukkan 12 en þá mætast West Ham United og Tottenham Hotspur í grannaslag.
West Ham vann öruggan sigur á Sheffield United í síðustu umferð en á sama tíma steinlá Tottenham gegn toppliði Manchester City á Etihad vellinum. Fyrir leikinn í dag er West Ham í fimmta sætinu en Tottenham í því níunda.

David Moyes, stjóri heimamanna, gerir tvær breytingar frá sigurleiknum á Sheffield. Pablo Fournals kemur inn fyrir Ben Johnson og þá kemur Michail Antonio í byrjunarliðið. Manuel Lanzini fær sér sæti á bekknum.

Jose Mourinho gerir eina breytingu frá síðasta deildarleik Tottenham. Sergio Regulion er klár í slaginn og kemur inn fyrir Ben Davies.

West Ham: Fabianski, Coufal, Dawson, Diop, Cresswell, Rice, Soucek, Fournals, Bowen, Lingard, Antonio.
Varamenn: Randolph, Martin, Johnson, Balbuena, Alves, Noble, Lanzini, Benrahma, Odubeko.

Tottenham: Lloris, Tanganga, Sanchez, Dier, Reguilon, Højbjerg, Ndombele, Lamela, Lucas, Son, Kane.
Varamenn: Hart, Alderweireld, Davies, Doherty, Winks, Sissoko, Dele, Bale, Vinicius.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.