Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 21. nóvember 2020 21:46
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Ronaldo gerði bæði mörk Juventus í sigri á Cagliari
Cristiano Ronaldo var heitur gegn Cagliari
Cristiano Ronaldo var heitur gegn Cagliari
Mynd: Getty Images
Juventus 2 - 0 Cagliari
1-0 Cristiano Ronaldo ('38 )
2-0 Cristiano Ronaldo ('42 )

Portúgalski sóknarmaðurinn Cristiano Ronaldo skoraði bæði mörk Juventus er liðið vann Cagliari, 2-0, í Seríu A í kvöld.

Ronaldo hefur verið heitur í byrjun leiktíðar en fyrir leikinn var hann með 6 mörk í aðeins 4 leikjum.

Hann skoraði fyrra mark sitt á 38. mínútu. Ronaldo var með boltann vinstra megin í teignum, gerði nokkrar gabbhreyfingar áður en hann skaut boltanum í hægra hornið.

Fjórum mínútum síðar tvöfaldaði hann forystuna með marki eftir hornspyrnu. Merih Demiral skallaði hornspyrnu Juan Cuadrado á fjærstöngina þar sem Ronaldo var mættur til að afgreiða boltann í netið.

Hann er nú með átta mörk í deildinni og samtals 8 mörk í 6 leikjum í öllum keppnum. Juventus fer upp í annað sætið með sigrinum og er með 16 stig, stigi á eftir AC Milan.
Athugasemdir
banner
banner
banner