Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 23. nóvember 2020 14:30
Magnús Már Einarsson
Southampton vill fá Brandon Williams á láni
Mynd: Getty Images
Southampton hefur áhuga á að fá Brandon Williams, bakvörð Manchester United, í sínar raðir en The Athletic greinir frá þessu.

Southampton vildi fá Williams á láni í sumar en Ole Gunnar Solskjær vildi ekki sleppa honum þá.

Williams hefur ekkert komið við sögu í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili og möguleiki er á að hann fái að fara núna í janúar á lán.

Luke Shaw er meiddur í augnablikinu en Alex Telles spilaði í vinstri bakverði gegn WBA á laugardaginn á meðan Williams var ónotaður varamaður.

Williams er því númer þrjú í röðinni hjá United í augnablikinu og því gæti hann fengið að fara á lán.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner