Fotbolti.net
24.01.21 - 16:45
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Ítalía: Verona skellti Napoli - Cagliari tapaði í Genúa

Mattia Zaccagni skoraði og lagði upp gegn Napoli.

Mattia Zaccagni skoraði og lagði upp gegn Napoli.

Canon

Mynd: Getty Images

Verona og Napoli áttust við í hörkuslag í ítalska boltanum í dag og tóku lærisveinar Gennaro Gattuso forystuna eftir tæpar tíu sekúndur.
Mexíkóinn fljóti Hirving Lozano slapp þá í gegn eftir varnarmistök og skoraði framhjá Marco Silvestri.

Leikurinn var jafn framan af og sýndu heimamenn, sem eru þekktir fyrir að verjast vel og beita skyndisóknum, góða takta. Þeir náðu að jafna metin með marki frá Federico Dimarco og staðan jöfn í hálfleik.

Síðari hálfleikurinn var áfram nokkuð jafn þar sem heimamenn í Verona nýttu færin sín betur. Sóknartengiliðirnir Antonin Barak og Mattia Zaccagni sáu um að gera næstu tvö mörk leiksins og staðan orðin 3-1 á lokakaflanum.

Lærisveinar Gattuso áttu engin svör og þurfa að sætta sig við ósigur. Þetta er mikill skellur fyrir Napoli sem hefði tekið fjórða sæti Serie A deildarinnar af Juventus með sigri.

Napoli er þess í stað í sjötta sæti, með 34 stig eftir 18 umferðir. Verona er fjórum stigum á eftir.

Verona 3 - 1 Napoli
0-1 Hirving Lozano ('1)
1-1 Federico Dimarco ('34)
2-1 Antonin Barak ('62)
3-1 Mattia Zaccagni ('79)

Í Genúa átti Genoa leik við Cagliari í fallbaráttunni og skoraði Mattia Destro strax á tíundu mínútu eftir stoðsendingu frá Kevin Strootman.

Cagliari var með völdin á vellinum en heimamenn í Genoa voru skeinuhættir.

Cagliari tókst ekki að jafna þrátt fyrir góðar tilraunir og frábærlega gert hjá Genoa að halda út. Þetta eru afar dýrmæt stig í fallbaráttunni.

Cagliari er í fallsæti, með 14 stig úr 19 leikjum. Genoa er með 18 stig.

Genoa 1 - 0 Cagliari
1-0 Mattia Destro ('10)
Ítalía: Verona skellti Napoli - Cagliari tapaði í Genúa
Canon

Mynd: Getty Images

Ítalía: Verona skellti Napoli - Cagliari tapaði í Genúa
Canon

Mynd: Getty Images

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Juventus2+56
1Inter1+33
2Inter2+56
2Napoli1+23
3Cagliari1+13
3Bologna2+14
4Milan1+33
4Udinese101
5Como101
5Napoli1+23
6Chievo1+13
6Lecce000
7Bologna000
7Sampdoria1+13
8Frosinone000
8Roma2-13
9Sassuolo000
9Torino101
10Venezia000
10Lazio101
11Sassuolo101
11Roma000
12Juventus000
12Spal101
13Genoa2-21
13Fiorentina000
14Udinese1-10
14Milan000
15Atalanta1-10
15Atalanta000
16Benevento2-20
16Lazio000
17Verona1-20
17Torino000
18Cagliari1-30
18Parma1-10
18Cremonese38-2534
19Genoa1-20
19Verona38-3621
19Crotone1-30
20Pisa38-4518
20Monza1-30
20Fiorentina1-30
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.