Fotbolti.net
24.11.21 - 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ancelotti: Betra að vera á Ferrari en Fiat 500

Ancelotti: Betra að vera á Ferrari en Fiat 500
Canon

Mynd: EPA

Carlo Ancelotti, stjóri Real Madrid var spurður á fréttamannafundi, fyrir leik Real Madrid og Sheriff Tiraspol í Meistaradeildinni, hvort það væri flókið að þjálfa Real.

Ancelotti stýrði Everton þar til í vor en þá söðlaði hann um og tók við Real Madrid í annað sinn á sínum stjóraferli. Real er talsvert stærra félag en Everton og ákvað Ancelotti að nota tvær bílategundir til þess að bera félögin saman.
„Það er ekki flókið þannig séð, en það er betra ef þú vilt ná frama í kappakstri að aka Ferrari bifreið frekar en Fiat 500," sagði Ancelotti.

„Mér líður smá þannig á þessari stundu sem þjálfari Real Madrid."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.