Fotbolti.net
24.12.12 - 13:00
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Lið vikunnar í enska - Downing í liðinu

Stewart Downing er sjaldséður í úrvalsliðum sem þessum.

Stewart Downing er sjaldséður í úrvalsliðum sem þessum.

Canon

Mynd: Getty Images

Að þessu sinni kemur úrvalslið umferðarinnar í enska boltanum frá Goal.com. Þrír leikmenn Chelsea eru í liðinu eftir slátrunina á áttavilltum leikmönnum Aston Villa.

Það var hörð barátta um að komast í liðið og bönkuðu Steven Pienaar, Luis Suarez, Steven Gerrard, Frank Lampard og Shola Ameobi allir fast á dyrnar en komust því miður ekki inn. Stillt er upp í 3-5-2 í dag.



Markvörður - Adam Federici, Reading
Var ansi nálægt því að halda hreinu gegn Englandsmeisturum Manchester City en sigurmark í uppbótartíma eyðilagði það.

Varnarmaður - Jan Vertonghen, Tottenham
Lokaði öllum leiðum fyrir Stoke í markalausu jafntefli á laugardag.

Varnarmaður - Fabricio Coloccini, Newcastle
Leiddi Newcastle aftur á sigurbraut þegar liðinu tókst að leggja QPR.

Varnarmaður - Leighton Baines, Everton
Átti afbragðs leik, eins og oft áður, þegar Everton sótti sigur gegn West Ham.

Hægri kantur - Chris Brunt, West Brom
Var mjög öflugur þegar West Brom lagði Norwich.

Miðjumaður - Jack Wilshere, Arsenal
Wilshere átti góðan leik í naumum sigri á Wigan. Býr yfir miklum hæfileikum og var sárt saknað hjá Arsenal meðan hann var meiddur.

Miðjumaður - David Luiz, Chelsea
Er að finna sig vel á miðjunni og skoraði eitt af átta mörkum Chelsea.

Vinstri kantur - Stewart Downing, Liverpool
Lék stórt hlutverk í 4-0 sigri gegn Fulham. Skoraði og lagði upp.

Fremstur á miðju - Eden Hazard, Chelsea
Gjörsamlega lék sér að leikmönnum Aston Villa. Frábær leikmaður.

Sóknarmaður - Fernando Torres, Chelsea
Kom Chelsea á bragðið gegn Villa. Allt annað að sjá hann eftir að Rafa Benítez tók við á Stamford Bridge.

Sóknarmaður - Romelu Lukaku, West Brom
Skoraði sigurmark West Brom gegn Norwich.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.