Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 25. febrúar 2020 14:37
Magnús Már Einarsson
Áhugi Manchester United á Grealish orðinn meiri
Mynd: Getty Images
Manchester Evening News greinir frá því í dag að áhugi Manchester United á Jack Grealish, fyrirliða Aston Villa, hafi aukist.

Hinn 24 ára gamli Grealish er á óskalista United fyrir sumarið en félagið vill ganga frá kaupunum sem fyrst.

Manchester United telur að Grealish eigi möguleika á að fara með enska landsliðinu á EM í sumar og þá gæti verðmiði hans hækkað.

Riftunarverðið í samningi Grealish hljóðar upp á 45 milljónir punda en Tottenham mistókst að fá hann á 25 milljónir punda árið 2018.

Manchester United ætlar að reyna að fá Grealish í sumar en hann þykir líklegri til að koma til félagsins en James Maddison, leikmaður Leicester, sem hefur líka verið til skoðunar.
Athugasemdir
banner
banner
banner