Newcastle vill kaupa Elanga - Memphis til Corinthians - Barca ætlar að fá Nico Williams - Casemiro og Eriksen mega fara - Kovacic íhugar framtíð sína...
   fim 25. júlí 2024 10:00
Elvar Geir Magnússon
Livey með sjónvarpsréttinn á Lengjudeild karla
Lengjudeildin
Úr leik Leiknis og Fjölnis í Lengjudeildinni.
Úr leik Leiknis og Fjölnis í Lengjudeildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Livey
Fyrr í þessum mánuði gekk Livey frá kaupum á sýningarrétti á Lengjudeild karla út þetta tímabil. Livey hefur nú þegar hafið útsendingar frá deildinni.

Þetta er í fyrsta sinn sem sjónvarpsréttur á Lengjudeild karla er seldur.

Livey er tiltölulega ný streymisveita sem hefur verið að ryðja sér til rúms og hefur meðal annars tryggt sér sjónvarpsréttindin á ítölsku, spænsku og belgísku deildinni ásamt sýningarétti frá öðrum íþróttagreinum.

Aukinn áhugi á Lengjudeildinni
„Við erum gríðarlega ánægð að hafa náð samningum við Livey um sjónvarpréttindin á Lengjudeild karla. Með tilkomu úrslitakeppninnar í Lengjudeildinni finnum við fyrir auknum áhuga á deildinni sem hefur skilað sér í að í fyrsta skipti fá félögin greitt fyrir sýningaréttinn á deildinni sem er mikið fagnaðarefni," sagði Birgir Jóhannsson, framvæmdastjóri ÍTF, í fréttatilkynningu.

„Það er okkur sönn ánægja að ýta Livey Sport áskriftinni á streymisveitunni okkar úr vör með Lengjudeildinni, en við höfum undanfarin ár átt frábært samstarf við félögin þar. Með því að nýta þá tækniframþróun sem hefur orðið í streymistækni stefnum við á að auka verulega framboð á íþróttaefni, bæði innlendu og erlendu og gera það enn aðgengilegra," segir Guðjón frá Livey

Hægt að kaupa áskrift en einnig staka leiki
Í tilkynningunni segir að meðfram þessum samningi verði unnið hörðum höndum að því að bæta framleiðslu á deildinni og auka gæði útsendinga. Framleiðslan verður áfram að hluta til í höndum OZ en sænska fyrirtækið Spiideo kemur einnig að framleiðslunni.

Allir leikir verða aðgengilegir inn á livey.events/livey-sport og einn leikur í hverri umferð verður áfram í opinni dagskrá á Youtube. Hægt er að kaupa aðgengi að öllu efni sem í boði er á Livey Sport þ.m.t. Lengjudeildin á 3.200 kr. á mánuði en einnig er í boði að kaupa staka leiki í deildinni á 1.000 kr. per leik.
Athugasemdir
banner
banner
banner