Fotbolti.net
26.11.12 - 08:00
Elvar Geir Magnússon

Domino\'s-lið vikunnar í enska

Sebastien Bassong hefur verið frábær hjá Norwich.

Sebastien Bassong hefur verið frábær hjá Norwich.

Canon

Mynd: Getty Images

Eftir hverja umferð í ensku úrvalsdeildinni leggst Garth Crooks, sérfræðingur BBC, undir feld og velur sitt úrvalslið.


Markvörður - Petr Cech, Chelsea
Öryggið uppmálað og hélt hreinu í leiknum gegn Manchester City.

Hægri bakvörður - Pablo Zabaleta, Man City
Öflugur varnarlega og alltaf tilbúinn að aðstoða í sóknarleiknum.

Miðvörður - Branislav Ivanovic, Chelsea
Sá til þess að sóknarmenn Manchester City tóku ekki þátt í leiknum á Brúnni.

Miðvörður - Sebastien Bassong, Norwich
Hefur verið frábær á leiktíðinni og lykillinn að því að Norwich er taplaust í sex leikjum í röð.

Vinstri bakvörður - Leighton Baines, Everton
Heldur áfram að fara á kostum og skapa færi.

Miðjumaður - Claudio Jacob, West Brom
WBA heldur áfram að koma á óvart. Jacob hefur blómstrað á miðri miðjunni.

Miðjumaður - Darren Fletcher, Man Utd
Skoraði gegn QPR og átti fleiri sendingar en nokkur annar í deildinni um helgina. Og margir héldu að ferli hans væri lokið.

Miðjumaður - Adam Lallana, Southampton
Fyrirliði Southampton sem unnið hefur tvo leiki í röð.

Miðjumaður - Gareth Bale, Tottenham
Hefur ekki byrjað tímabilið neitt mjög vel en hann sýndi sínar réttu hliðar gegn West Ham.

Miðjumaður - Jordi Gomez, Wigan
Stór ástæða þess að Wigan náði í þrjú stig gegn Reading þrátt fyrir mistökin hrikalegu frá Ali Al Habsi.

Sóknarmaður - Jermain Defoe, Tottenham
Skoraði tvö gegn West Ham en mörkin hefðu getað orðið enn fleiri.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.