Pierre-Emerick Aubameyang jafnaði leikinn gegn Olympiakos fyrir sitt lið Arsenal, með marki á 113. mínútu. Markið jafnaði einvígið en dugði ekki til þar sem Olympiakos skoraði undir lokin og fer áfram í 16 - liða úrslit Evrópudeildarinnar.
Leikur liðanna var framlengdur og var Olympiakos allt eins líklegt til að skora sigurmarkið en Aubameyang ætlaði sér að leiða sitt lið áfram og gerði það með frábæru marki.
Leikur liðanna var framlengdur og var Olympiakos allt eins líklegt til að skora sigurmarkið en Aubameyang ætlaði sér að leiða sitt lið áfram og gerði það með frábæru marki.
Gabriel Martinelli skallaði boltann eftir fyrirgjöf Mesut Özil og boltinn féll vel fyrir Aubameyang sem klippti hann frábærlega í netið. Staðan 1-1 á þessum tímapunkti en Grikkirnir svöruðu með marki undir lokin.
Mark Aubameyang má sjá hér.
Athugasemdir