Fotbolti.net
27.07.26 - 13:50
Elvar Geir Magnússon

Chelsea í viðræðum um kaup á Welbeck

Chelsea í viðræðum um kaup á Welbeck
Canon

Mynd: EPA

Chelsea er komið vel á veg í viðræðum við Brighton um sóknarmanninn Danny Welbeck.

Þessi 35 ára sóknarmaður vill fara til Chelsea samkvæmt frétt BBC og hjá Chelsea eru menn bjartsýnir á að ná samkomulagi.
Chelsea telur sig þurfa að bæta við reynslu í ungan leikmannahóp sinn.

Welbeck skoraði 13 deildarmörk í 37 leikjum fyrir Brighton á síðasta tímabili og er með 51 mark í 201 leik síðan hann kom frá Watford 2020. Núgildandi samningur hans við Brighton rennur út eftir komandi tímabil.

Joao Pedro er fyrsti maður á blað í fremstu víglínu Chelsea en félagið er einnig með Liam Delap, Emmanuel Emegha, Marc Guiu og Nicolas Jackson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.