Diomande velur PSG fram yfir Liverpool

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Yan Diomande, leikmaður Leipzig og landsliðs Fílabeinsstrandarinnar, hefur valið PSG sem næsta áfangastað á ferlinum. David Ornstein hjá The Athletic greinir frá þessu.
Þessi 19 ára gamli vængmaður hefur trú á verkefninu hjá PSG og vill spila undir stjórn Luis Enrique.

Vængmaðurinn sér flutning til frönsku höfuðborgarinnar sem besta tækifærið til að keppa stöðugt um titla og hugsanlega verða framtíðarverðlaunahafi Ballon D'Or.
Liverpool er tilbúið að greiða 100 milljónir evra fyrir hann en Leipzig vill fá um 130 milljónir evra fyrir hann og hafa jafnframt reynt að framlengja samninginn hans.
Diomande er í landsliðshópi Fílabeinsstrandarinnar á HM. Hann lagði upp í 2-0 sigri á Curacao í lokaleik riðilsins. Fílabeinsströndin mætir Noregi í 32-liða úrslitum.