Fotbolti.net
18.07.26 - 21:38
Ívan Guðjón Baldursson

Sjáðu mörkin: Englendingar þremur yfir

Sjáðu mörkin: Englendingar þremur yfir
Canon

Mynd: EPA

England og Frakkland eru að berjast um þriðja sæti heimsmeistaramótsins þessa stundina og er staðan 3-0 fyrir Englendinga eftir rétt tæpar 40 mínútur af leiknum.
Declan Rice náði forystunni snemma leiks eftir mislukkaða sendingu Désiré Doué. Rice komst í sendinguna og hljóp upp völlinn með boltann, en varnarmenn Frakka héldu áfram að bakka frá honum. Þeir bökkuðu og bökkuðu þar til Rice lét vaða með góðu skoti skammt utan vítateigs, sem endaði í netinu.

Sjáðu fyrsta markið.

Það var svo á 18. mínútu sem England tvöfaldaði forystuna og aftur átti Rice stóran þátt í markinu. Í þetta skiptið tók hann hornspyrnu sem Ezri Konsa skallaði í netið.

Sjáðu annað markið.

Bukayo Saka setti svo þriðja markið eftir auðvelda skyndisókn og virðist vera búinn að gera út um leikinn.

Sjáðu þriðja markið.
Sjáðu mörkin: Englendingar þremur yfir
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.