Fotbolti.net
18.07.26 - 20:53
Ívan Guðjón Baldursson

Middlesbrough fær rúmar 20 milljónir fyrir Rogers

Middlesbrough fær rúmar 20 milljónir fyrir Rogers
Canon

Mynd: EPA

Enskir fjölmiðlar segja að Aston Villa sé búið að samþykkja 117 milljón punda tilboð frá Chelsea í sóknartengiliðinn Morgan Rogers, sem hefur verið sterklega orðaður við Arsenal undanfarna mánuði.
Þetta verður metfé fyrir enskan leikmann þar sem Rogers kostar einni milljón meira heldur en Manchester City borgaði fyrir Elliot Anderson fyrr í sumar.

Þetta þýðir að Championship-félagið Middlesbrough fær rúmar 20 milljónir punda í sína vasa vegna endursöluákvæðis.

Aston Villa borgaði rúmar 15 milljónir til að kaupa Rogers úr röðum Middlesbrough í janúar 2024 og hélt Boro 20% endursöluákvæði af hagnaði á næstu sölu. Það þýðir að Boro fær 20,3 milljónir í kassann hjá sér ef Rogers verður seldur fyrir svona háa upphæð.

Flottur hagnaður fyrir Boro sem borgaði rétt rúma eina milljón til að kaupa Rogers úr röðum Manchester City í júlí 2023. Hann var aðeins hjá félaginu í hálft ár áður en Aston Villa festi kaup á honum.

Aston Villa búið að samþykkja risatilboð í Morgan Rogers
TENGT EFNI

Aston Villa búið að samþykkja risatilboð í Morgan Rogers

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.