Fotbolti.net
18.07.26 - 20:00
Víðir Sigurðsson

Valsstrákur slær metið sem yngsti leikmaðurinn í sögu deildarinnar

Valsstrákur slær metið sem yngsti leikmaðurinn í sögu deildarinnar
Canon

Mynd: Aðsend

Novak Tufegedzic, ungur knattspyrnumaður úr Val, varð í kvöld yngsti leikmaðurinn í sögu efstu deildar karla í knattspyrnu en hann er í byrjunarliði Vals sem leikur þessa stundina gegn Fram í 15. umferð Bestu deildarinnar á Hlíðarenda.
Novak er aðeins 14 ára og 26 daga gamall en hann er enn gjaldgengur í 4. flokk og hélt upp á fjórtán ára afmælið þann 22. júní.

Hann bætir met KR-ingsins Alexanders Rafns Pálmasonar um 121 dag en Alexander lék 14 ára og 147 daga gamall með KR gegn ÍA 1. september 2024.

Alexander setti síðan met á síðasta ári sem yngsti byrjunarliðsmaðurinn, þá 15 ára og 33 daga gamall, og Novak tók það líka af honum í kvöld.

Novak, sem er sonur Srdjans Tufegdzics (Túfa), fyrrverandi þjálfara Vals, er sjötti leikmaðurinn sem spilar 14 ára gamall í efstu deild karla frá upphafi en hinir fimm eru eftirtaldir:

Alexander Rafn Pálmason, sem lék 14 ára og 147 daga gamall með KR árið 2024.
Gils Gíslason, sem lék 14 ára og 318 daga gamall með FH árið 2022
Arnar Breki Björnsson, sem lék 14 ára og 320 daga gamall með Stjörnunni á þessu ári.
Eyþór Orri Ómarsson, sem lék 14 ára og 330 daga gamall með ÍBV árið 2018.
Alexander Máni Guðjónsson, sem lék 14 ára og 343 daga gamall með Stjörnunni árið 2024.

Næstyngstur í sögunni hjá KR
TENGT EFNI

Næstyngstur í sögunni hjá KR


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.