Aron Einar fer yfir stöðuna: Gæti verið farinn eftir tvær vikur
Auglýsing

Mynd: Þór

Aron og Gylfi mættust í dag.

Mynd: KSÍ

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Þór
„Það er gott að vera kominn aftur í Þór. Frábært veður sem við bjóðum upp á hérna fyrir norðan. Fínn taktur í þessu í dag, náðum að draga úr þeirra styrkleikum. Við vissum að þeir kæmu með smá laskað lið eftir þessa keyrslu sem þeir eru í. Ef það var einhvern tímann lag til að sigra Víkinga þá var það í dag og við vorum heppnir að fá þá í dag," segir Aron Einar Gunnarsson, leikmaður Þórs, eftir sigur á Víkingi.
Leikurinn var sá fyrsti hjá Aroni með Þór í efstu deild og hans fyrsti með liðinu frá því í lok tímabils 2024.

Lestu um leikinn: Þór 2 - 1 Víkingur R.
„Ég er búinn að skrifa undir hjá Þór og hugur minn er hér. En þeir (ráðamenn Þórs) að staðan mín er skrítin og ég gæti verið farinn eftir tvær vikur, en ég gæti klárað tímabilið. Það eru einhverjar þreifingar í gangi, en ekkert konkrít. Ég er leikmaður Þórs eins og staðan er í dag og vonandi verður það bara þannig," segir Aron en það er áhugi frá Katar.
„Það var mjög gott að fagna sigri, það er gott að vera kominn heim. Þetta er fjölskylduklúbbur, minn klúbbur og það er alltaf gott að fagna með þeim."
Hann segir að skrokkurinn sé fínn.
„Það vantaði smá upp á lungun en það kemur. Ég er búinn að vera on/off á æfingum út af stöðunni sem ég er í, það var ekki alveg rytmi í mér. Ég reiknaði með 60 mínútum og náði rúmlega því."
Hlakkar til að mæta KA
Næsti leikur Þórs er á móti KA. Lofar Aron að hann verði með í þeim leik?
„Já já, eða þú veist nema eitthvað annað kemur upp, við vitum það ekki. Það verður annar naglbítur. Þór-KA er alltaf stór leikur og ég hlakka til að taka þátt í honum."
„Ég spilaði á móti þeim í 1. deild áður en ég fór út á gamla Akureyrarvelli. Það var alltaf gaman og þetta veður stál í stál."
Mætti Gylfa á miðjunni
„Frábær leikmaður og góður vinur, við höfum gengið í gegnum ýmislegt saman. Ég þekki hann betur en flesta aðra og öfugt, við höfum spilað marga leiki saman á miðjunni. Ég mætti honum á Goodison Park með Cardiff á móti Everton og svo núna í Þorpinu. Það er smá munur á þessu, en alltaf gaman að spila á móti honum og áskorun að mæta góðum leikmönnum," segir Aron.