Mbappé orðinn markahæstur í sögu HM

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Kylian Mbappé skoraði tvennu er Frakkland tapaði 6-4 gegn Englandi í bronsleiknum á heimsmeistaramótinu fyrr í kvöld.

TENGT EFNI
Söguleg endurkoma í kortunum?
Hann er orðinn markahæsti leikmaður HM-sögunnar með þessari tvennu, þar sem hann hefur gert 22 mörk í 22 leikjum - einu marki meira heldur en Lionel Messi sem á 21 mark í 33 leikjum.
Þetta er magnað afrek fyrir Mbappé sem er aðeins 27 ára gamall.
Messi getur að vísu endurheimt markametið þegar hann mætir Spáni í úrslitaleik HM annað kvöld, en Mbappé hefur nægan tíma til að skora fleiri mörk þegar hann fer aftur á HM í framtíðinni. Ólíklegt er að 39 ára gamall Messi taki aftur þátt á HM, þó það sé aldrei að vita.
Miroslav Klose er í þriðja sæti á listanum yfir markahæstu menn í sögu mótsins, með 16 mörk í 24 leikjum. Brasilíski Ronaldo skoraði 15 mörk í 19 leikjum og þar á eftir koma Gerd Müller og Harry Kane.
Frakkinn Just Fontaine á enn metið yfir flest mörk á sama mótinu, eftir að hafa skorað 13 mörk í 6 leikjum á HM 1958. Hann fótbrotnaði áður en hann gat aftur tekið þátt á HM.
Mbappé skoraði 10 mörk á HM í sumar og er í þriðja sæti yfir markahæstu menn á einu og sama mótinu, ásamt Gerd Müller.